06.05.2012 21:37
Skemmtilegur útreiðartúr

Það var ekkert smá gott veður sem við fengum í útreiðartúrnum í dag
Góð vinkona okkar hún Nína kom með okkur og fékk hún að ríða henni Náttrúnu og leiddist það ekki.
Þarna fyrir aftan hana glittir í heimasætuna hana Írisi sem
reið Gæfu sinni

Frúin á Gná, teymir Rán og karlinn á Snerli með Tjörn í taumi.
Ekkert smá flott úsýni!!
Íris á drottningunni henni Gæfu

Flott reiðleið niður brattann
Komið í áningu og frúin þarf að skipta um hross enda best að skipta oft um þegar maður er með tryppi þannig að þau verði ekki of þreytt.
Tveir góðir og sýnist mér nú að ekki sé langt í bæjarfógetann

Gróðurinn allur að lifna við í Heiðmörk

Nína að verða eins og hinir útlendingarnir með hnakkinn
langt fram á háls

Síðasta áningin áður en lagt var í síðasta legginn heim í hesthús. Alveg er yndislegt að ríða um Heiðmörkina á þessum árstíma.
Hrossunum finnst líka gott að byrja á nálinni sem er byrjuð að koma upp.
Svo er ekkert smá gott að velta sér eftir góðan túr

Gæfan líka að velta sér
Tjörn og Rán að þiggja smá klór og mola
Snerill fær líka klór og mola. Ránin að bíða hvort hún fái nú ekki meira af svona góðu atlæti frá heimasætunni
02.05.2012 20:41
Með kameruna á lofti.....:)

Völusteinn fer í kynbótadóm á Sörlastöðum
sem verður 7. - 11.mai 2012.
Við kíktum á Sigga og Völusteinn sl mánudag og tókum alveg frábærar myndir. Alveg hefði maður mátt vanda myndatökuna meira en þegar hesturinn þaut framhjá manni svona flottur þá gleymdi maður að miða kamerunni og halda takkanum inni
Vonandi verða betri tölur hjá honum í ár en múkkið hefur ekki látið á sér kræla og þjálfunin hefur gengið vel. Að vísu var kauði bara orðinn graður og viljugur strax í febrúar langt á undan hinum gröddunum í húsinu
Vonandi hefur hann ekki ollið miklum vandræðum hjá þeim!
Fleiri myndir eru af Völusteini í myndaalbúmi
Silfra fór til Hallgríms á Arabæ þann 28. apríl sl og er stefnt með hana í kynbótadóm nú í vor. Við keyrðum austur í gær til að skoða hana. Silfra er hágeng og viljug áfram. Þar sem skeiðið hefur ekki verið mikið æft er pælingin að sýna hana sem fjórgangs meri og fá þá hærri tölu fyrir töltið, en þetta kemur allt í ljós. Hallgrímur er allavena mjög ánægður með hana þar sem hún er líka með úrvals geðslag.
Fleiri myndir af Silfru í myndaalbúmi
Þar sem við fórum að kíkja á Silfru ákváðum við að taka hana Esju með okkur og láta Hallgrím prufa hana og athuga hvort ekki væri hægt að hækka kynbótadóminn sem hún fékk í fyrra
Hallgrímur skellti sér strax á bak og reið henni þarna um nágrenið og við biðum, alveg að deyja úr spenningi hvort hún væri orðin nógu góð eftir alla þjálfunina í vetur. Og svo kom hann tilbaka og sagði: Það ætti alveg að vera hægt að hækka tölurnar hennar
Og þar með varð Esja eftir á Arabæ. Fleiri myndir af Esju í myndaalbúmi
25.04.2012 20:37
Kíkt á Glófaxa hjá Ragnari

Kíktum á Ragnar og Glófaxa í Víðidalnum í dag.
Tókum nokkrar myndir af þeim félögum og einnig vídeó. Þarf samt enn að læra hvernig á að vinna myndböndin
Hann er enn að fara úr hárum og ná þessum flotta lit sínum sem hann er alltaf með á vorin og fyrri part sumars.
Og í loftinu á stökkinu
Brokkið alveg í lagi en það hefði mátt vanda myndatökuna
meira

Og maður kann alveg að feta enda með 9una þar
Jæja, það helst í fréttum að frúin útskrifaðist úr Reiðmanninum á sumardaginn fyrsta með pompi og pragt. Fórum uppá Hvanneyri í formlega útskrift með flottum sýningarattriðum sem ég skelli kannski inn seinna. Búið að vera dálítil törn á manni sl 2 mánuði. Bæði námið, vinnan, hesthúsið og heimilið. Stundum mikið að takast á við en gott að vera búin að þessu. Set við tækifæri myndir af mér og skólahestinum henni Esju
Svo er skemmtilegi útreiðartíminn kominn þegar dagurinn lengist, vorið í loftinu og hestarnir æðislegir.
Fleiri myndir í myndaalbúmi![]()
- 1
