Stóðhestafréttir (skrollið niður, fleiri fréttir)
Miðfossar 11.06. 2011
Völusteinn var sýndur aftur af Sigurði V. Matthíassyni á Héraðssýningunni á Vesturlandi sem haldin var á Miðfossum.

Hann hlaut 7,69 fyrir sköpulag og 8,01 fyrir hæfileika. Bara glæsileg frammistaða hjá honum eftir aðeins 2ja mánaða þjálfun í vetur.
Hann hækkar úr 7,34 fyrir sköpulag í 7,69 sem sýnir líka að það skiptir máli hvernig hrossunum er stillt upp og hvernig þau eru járnuð.
Völusteinn hækkar einnig hæfileikana úr 7,62 í 8,01. Fyrir yfirlitið í dag var hann með 7,77 fyrir hæfileika.
Myndir eru frá yfirlitinu í myndaalbúmi
Völusteinn fæst lánaður í merar gegn hagagöngu fram á haustið. Skilyrði er að gott eftirlit sé og góð beit.
Áhugasamir hafið samband á hestur(hjá) internet.is

Völusteinn was shown again by Sigurður V. Matthíasson at Miðfossar Borgarnesi.
He got 7,69 for conformation and 8,01 for abilities. That is a good achievement if we keep in mind that he was only trained for 2 months this past winter.
Since he was shown in Hafnarfjörður he raises his scores for conformation from 7,34 to 7,69 and his abilities from 7.62 to 8,01.
Fotos from Miðfossar today.
We would like to lend out Völusteinn for some mares in turn for upkeep until the fall. If you´re interested then contact us at hestur(at) internet.is for more informations and conditions.
----------------------------------------------------------------

Kynbótasýning í Víðidal
Glófaxi var sýndur í Víðidal þann 16.mai 2011 af Sigurði Vigni Matthíassyni. Hann hlaut 8.24 fyrir sköpulag, 7.60 fyrir hæfileika og 7.86 í Aðaleinkun. Hann er með 8 á línuna nema 8.5 fyrir stökk og 9 fyrir fet. Bara góðar einkunnir fyrir skeiðlausan hest.
Fleiri myndir af sýningunni í Víðidal í myndaalbúmi.
Glófaxi was shown by Sigurður Vignir Matthíasson in Víðidalur on 16th of may 2011. He got 8.24 for conformation and 7.60 for abilities. He has the score 8 for all gates except 8.5 for canter and 9.0 for walk. Pass was not shown so he got the score 5 for that gate.
More pictures from Víðidalur in the photo albums.
------------------------------------------------------------------------

Völusteinn verður sýndur í Hafnarfirði þann 23.5 - 27.5. 2011. Sýnandi er Jelena Ohm.
Völusteinn will be shown in Hafnarfjörður by Jelena Ohm on the 23.5. - 27.5. 2011.
---------------------------------------------------------------------------
Myndir teknar í Andvara
Hún Jelena Ohm hefur verið að þjálfa Völustein núna á annan mánuð og gengið mjög vel með hann. Múkkið verið til friðs og ef Völusteinn heldur áfram að bæta sig verður lítið mál að sýna hann í vor.
Jelena Ohm has been training Völusteinn now for about two months and is doing að great job with him. His feet have been ok and if he continues to progress like he has been then it will be no problem to show him this spring.
Glófaxi stóð sig með prýði í Reiðmanninum og vorum við bara með mjög góða einkun í lokaprófinu. Jelena Ohm tók við þjálfun hans þegar prófum lauk og verður með hann þar til hann verður sýndur.
Glófaxi did a great job as my school horse and we got good grades in the final test. Jelena Ohm took over his training when school finished and will continue until he will be shown this spring.
Setti inn nokkrar myndir af þeim bræðrum og Jelenu sem við tókum sl laugardag úti í Andvara.
I have put in some picturs of the brothers and Jelena which we took last Saturday in Andvari.

Glófaxi tölt

Glófaxi brokk

Glófaxi stökk

Völusteinn tölt

Völusteinn brokk

Völusteinn stökk
Fleiri myndir af Glófaxa í myndaalbúmi
More pictures from Glófaxi in his photoalbum
Fleiri myndir af Völusteini í myndaalbúmi
More pictures of Völusteinn in his photoalbum
Báðir folar eru lausir til útleigu næsta sumar.
Þeir gefa bollétt, geðgóð og gangsöm folöld.
Sjá má myndir af Völusteinsdótturinni okkar og Glófaxasyninum í myndaalbúmi
Both brothers can be rented out for mares this summer. Their offsprings have excellent conformation, good temprament and good gates.
You can see photos of our foals from them in their photoalbum
Nýtt blogg hér
Bræðurnir Glófaxi og Völusteinn eru í Heimsenda í Kópavogi.
The stallion brothers Glófaxi and Völusteinn are in Heimsendi Kópavogi.

Glófaxi hefur fengið það verkefni að vera skólahestur í Reiðmanninum sem kenndur er frá Hvanneyri, en verklegir tímar eru í Hafnarfirði.
Nýjar myndir eru í myndaalbúmi
Glófaxi is now being used as a school horse for a two year course that is taught at the Agricultural University at Hvanneyri.
New photos are in his photoalbum

Völusteinn verður í hvíld á meðan er verið að takast á við múkkið sem er enn að hrjá hann en þó virðist hann vera á batavegi.
Þegar hann verður orðinn góður verður haldið áfram með þjálfun hans og stefnt á kynbótasýningu í vor.
Völusteinn is being treated for his hoof problems and will not be in training while he´s recovering.
Báðir folar eru lausir til útleigu næsta sumar.
Þeir gefa bollétt, geðgóð og gangsöm folöld.
Both brothers can be rented out for mares next summer.
Their offsprings have exellent conformation, good temprament and good gates.
Sónað
Þann 7. September var sónað undan þeim Glófaxa og Völusteini.
Þetta gekk allt hratt og vel fyrir sig enda merarnar vanar.
Þær voru allar fengnar og voru sóttar til síns heima
Auðvitað voru allir minntir á að senda nú myndir af afkvæmunum sem koma næsta vor
Völusteinn fór þann 20. ágúst til hans Árna á Snæfellsnesið og verður þar úti ásamt 1 meri en Árni byrjar á þjálfuninni þar.
Glófaxi fór þann 3. september í annan haga þar sem hann verður aðeins fram á haustið og fer nú að skýrast í hvaða verkefni hann fer
--------------------------------------------------------------------------------------------------------
Við fengum 2 folöld undan bræðrunum núna í vor.
IS2010125303 Skildingur frá Kópavogi
Skildingur er brúnvængskjóttur, sokkóttur og skottóttur. Hann fer aðallega um á tölti með ágætri lyftu og rúmum skrefum.
Byggingin er góð, háar herðar, skásettir bógar og mjúkt bak.
Hann er alhliða hestur og undan Glófaxa og Sokkudís frá Ásgarði.
Kíkið á myndaalbúmið hans.
IS2010225304 Álfadís frá Kópavogi
Álfadís er móbrún með stjörnu og er undan Völusteini og Birtu frá Tjörnum. Álfadís fór mest um á tölti fyrstu mánuðina en núna er það brokkið sem er tekið fyrir.
Kíkið á myndaalbúmið hennar.
We got two foals from our stallion brothers.
IS2010125303 Skildingur frá Kópavogi
Skildingur is a brownpinto that has lots of tölt and he´s propably five gated. He has a beautiful conformation and his sire is Glófaxi frá Kópavogi and her dam is Sokkadís frá Ásgarði.
Check out his photoalbum
IS2010225304 Álfadís frá Kópavogi
Álfadís is a brown filly with a star. Her sire is Völusteinn and her dam is Birta frá Tjörnum.
Völudís used tölt for the first months of her life but now she seems to prefer trot.
Check out her photoalbum
Svo eru nú folöldin á Stórhóli sem eru undan Völusteini endilega kíkið á myndaalbúmið á Stórhólssíðunni því þar gætu einhver folöld verið til sölu. Svo er bara um að gera að skella sér í Víðidalstunguréttina í haust og versla
Völusteinn was the summer of 2009 at Stórhóll in Húnavatnssýslu and some foals where born there this last summer. Check out the photoalbum at Stórhóll and maybe there are some foals there for sale.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------
23. Júni 2010
Bræðurnir Glófaxi og Völusteinn eru í 1 löngu gangmáli að Neðra-Skarði í Hvalfjarðarsveit.
Enn eru nokkur laus pláss undir þá.
Pantanir teknar á hestur@internet.is
eða í síma 694-1967.
Á Neðra-Skarði er nokkura ára reynsla af stóðhestagirðingum og eru hagar góðir og grasgefnir fyrir hryssur og folöld. Gott eftirlit er með girðingum og sónað er 1 sinni á gangmálinu. Þær hryssur sem ekki eru fengnar geta verið áfram hjá folunum og hægt að sóna aftur í haust.
Verð 40 þús fyrir folatoll, girðingagjald og 1 sónar.
Ekkert mál að bæta inná þá bræður.
Sjá, neðar fleiri fréttir.
Kíkið í myndaalbúmin þar sem hægt er að sjá nýjustu myndir af afkvæmum þeirra bræðra.
Heimasíða Stórhóls þar sem hægt er að sjá nýjustu myndir af afkvæmum Völustein sem fæddust nú í vor 2010.
-----------------------------------------------------
14. Júni 2010
Fékk senda skemmtilega mynd frá honum Sigurði Arnari á Neðra-Skarði

Glófaxi að sinna merunum sínum samviskusamlega
Það eru enn laus nokkur pláss undir þá bræður og um að gera tryggja sér falleg, geðgóð og gangsöm folöld.
Öll folöld í Rauðanesi 2 eru fædd og förum við að gera okkur ferð þangað um helgina að taka myndir.
Af þeim merum sem fóru undir Glófaxa í fyrra er aðeins 2 eftir að kasta. Það er hún Sokkadís frá okkur og 1 meri úr Rauðanesi 1. En það hlýtur að fara styttast í þær
Endilega kvittið fyrir komu ykkar í gestabókinni.
27. Júní 2010
Á Sunnudaginn sl fórum við með hana Náttsól frá Kirkjuferju í hólfið til hans Glófaxa. Náttsól er undan Kolfinni frá Kvíarhóli og heimaræktaðri hryssu frá Kirkjuferju.
Hæ þú
Höfum við ekki sést áður?
Ójú, og hér er sonur þinn sem fæddist í vor
Glófaxi tók mjög vel á móti Náttsól og syni sínum, algjör herramaður í þessu öllu saman
Svo kíktum við á Völustein sem var alveg orðinn óþekkjanlegur svona gló- eitthvað á litinn
Hann var þarna einnig alsæll með sínar merar en Árni, sem hefur séð um tamningarnar hjá okkur, var að koma með hana Hvítasunnu sína til hans.
Hvítasunna er undan Þór frá Akureyri og Merku frá Dunhaga II.
Gaman er að geta þess að Þór er undan Hirti frá Tjörn, og svo er önnur hryssa hjá Völusteini en hún er einmitt undan Hirti
Lítill heimur stundum hjá hestunum líka
Já, Völusteinn bara kurteis, kallinn
Hann tók merinni og folaldinu líka bara vel eins og Stóri bróðir Glófaxi
Svo var auðvitað að reka meri og folald til hinna hryssanna, enda gætu verið aðrir stóðhestar þarna í kring og eins gott að halda sínu til haga
11. Júní 2010

Síðasta Föstudag fórum við með Glófaxa í hagann að Neðra-Skarði. Hann var alveg með það á hreinu hvert hann væri að fara enda var hann ekkert rosalega ánægður með það að þurfa bíða á meðan við tókum skeifurnar undan honum
Við vorum nefnilega að koma úr tryppafluttningum að norðan og fengum hann Árna tamningamann til þess að skutla Glófaxa að Neðra-Skarði og ákváðum þá að taka undan í sameiningu.

Eftir innistöðu síðast liðnar vikur var hann ekkert smá feginn að komast út í vorið.

Birta okkar beið eftir honum með hana Álfadís Völusteinsdóttur en ekki var hún alveg tilbúin að fá við Glófaxa strax. Hún ætti þó að vera að byrja í látum fljótlega þar sem Álfadís er fædd 25. Mai.

Hér er skemmtileg mynd þar sem hún lítur út eins og hann sé liggjandi í grasinu, en hann er að hlaupa þarna hinu megin við barð
Enn eru laus pláss undir hann og gefur hann bollétt og gangsöm afkvæmi.
Nýtt albúm hjá Glófaxa fyrir afkvæmi fædd 2010.
Hægt er að sjá myndir af afkvæmum hans í albúmi hér á síðunni sem fæddust á Stórhóli 2009.
Svo er hún Frostrós Glófaxadóttir frá Stórhóli, fædd 2009, og er alveg ótrúlega lík pabba sínum. Held að eigandinn hún Valgerður á Hrauni sé alveg sátt við hana.
Og hann Sindri frá Dalsbúi sem fæddist nú í vor 2010 og er að sögn eigandans, Helgu Skowronski, alveg gullfallegur og hleypur um á tölti og skeiði.
Svo er hægt að sjá í myndaalbúmi á heimasíðu Stórhóls afkvæmi frá því 2009, og þar átti Glófaxi þó nokkuð af afkvæmum.
5. Júni 2010

Þann 5. Júni fórum við með Völustein í hólfið á Neðra-Skarði. Sá var ekkert smá ánægður að komast út í sumarið.
Sigurður Arnar á Neðra-Skarði tók á móti okkur og bauðst til þess að teyma Völustein út í hagann, enda hefði maður lítið haft við honum þar sem hann vissi alveg hvert hann vara að fara

Maður reyndi sko mikið til að ganga í augun á gellunum m.a. sést vel í bleika ...... hm, fermingarbróðurinn sagði einhver

Þessi meri var greinilega tilbúin í slaginn enda fékk hún fyrst þjónustu frá honum meðan við vorum þarna

Það eru enn laus pláss undir Völustein ef þið hafið áhuga.
Völusteinn er lífsglaður og eðlishágengur alhliða hestur sem er kurteis við merarnar sínar. Afkvæmin eru háfætt, bollétt og gangsöm. Uppl. hvernig má hafa samband er hér fyrir ofan.
Fleiri myndir eru komnar af Völusteini í myndaalbúmið hans.
Einnig er komið albúm fyrir afkvæmi hans 2010.
Hér er linkur á myndaalbúm folalda 2010 á Stórhóli þar sem Völusteinn var 2009.
24. Mai 2010
Kíktum í Hafnarfjörðinn í dag á þá bræður Glófaxa og Völustein.
Glófaxi er slappur og með lekandi úr nefinu. Kembdum honum og fórum aðeins út með hann. Ekki hafði hann neinn áhuga á þeim hestum sem fyrir voru úti. Það er útséð um að hann verði sýndur nú í vor Engin þjálfun er búin að vera á honum núna í Maimánuði þegar hún hefði átt að vera í hámarki. Við munum setja hann út núna rétt eftir mánaðarmót þegar hlýnað hefur í veðri. Hann verður að Neðra-Skarði og eru enn laus pláss undir hann.
Völusteinn hins vegar hefur ekki sýnt einkenni flensunnar
Hann hefur verið með sýkta hesta sitt hvorum megin við sig en ekki fengið einkenni. Hann hefur ekki verið slappur í reið heldur. Við erum ekki alveg að skilja þetta. Við munum halda áfram með hann og sjá til hvað gerist. Eins og við vitum getur þessi flensa verið að malla lengi í hrossunum áður en þau sýna einkenni og ekkert hægt að gera en að sjá bara til.
Maður getur ekki orða bundist vegna þessarar flensu. Veit fólk sem er í hestabransanum ekki að notuð reiðver má ekki flytja inn? Skilur það virkilega ekki, af hverju það eru reglur varðandi innfluttning á notuðum reiðverum, reiðfatnaði og skóm, eða kýs það að skilja það ekki? Ef ekki er farið eftir þessum reglum getum við þá ekki bara átt von á því að næst komi inn veiki svo skæð að hún felli bara allan hestastofninn? Þá er þetta sama fólk líka búið að missa lífsviðurværi sitt en kannski hugsar það ekki svo langt.
Glófaxi er farin að sýna fyrstu einkenni flensunnar og fellur því alveg úr þjálfun á meðan Völusteinn sýnir ekki einkenni en ætli hann fái þetta ekki bara líka, þar sem flensan er bráðsmitandi Alveg er þetta bagalegt með þessa veiki svona rétt fyrir kynbótadómana. Og engin leið að vita hvernig hrossin komast frá þessu því það virðist vera eins misjafnt og hrossin eru mörg. Sum hafa víst verið með einkenni sem ekki hefur verið tekið eftir og þeim riðið áfram, síðan veikjast þau og hef ég heyrt að vöðvaniðurbrot hafi líka komið fram. Einnig sá ég á hestafréttum að hryssa í útigangi hafði fallið frá folaldi sínu og mátti rekja dauða hennar til flensunnar ! 21. Mars 2010. Aftur í Sörla
12. mai 2010.
Í gær fórum við að kíkja á þá bræður í Sörla. Flott veður og þeir báðir komnir úr vetrarfeldinum. Vorum líka að kíkja á hvort flensan væri komin í húsið hjá þeim eins og hjá fleirum.
Og jú, hún var sko komin þarna
sum hrossin voru alveg ferlega veik, hóstandi og með horinn lekandi niður. Það var alveg auðsjáanlegt að þeim leið ekki vel.
Við höfum nú samt ákveðið að hann fái frí líka á meðan þetta gengur yfir.
Hólaskóli sendi frá sér tilkynningu að útskrift yrði ekki í vor vegna flensunnar en nemendur fá víst tækifæri til þess að taka þetta upp aftur
auðvitað fúlt að heilt ár er farið í súginn.
Hrikalegt að svona vírus komi bara allt í einu og lami alla hestamennsku, hvort sem það er kynbótasýningar, keppni eða almennar útreiðar!!
Allavena er mjög dauft yfir hesthúsahverfum á þessum góðviðrisdögum, þegar allt ætti að vera iðandi af lífi.
Ég bara vona að allir séu að fylgjast með sínum hrossum, hvort sem það er á útigangi eða í hesthúsunum, því það virðist sem að aldrei sé of varlega farið.
Hvað kemur næst? Kreppan, eldgosið með sína ösku yfir allan útigang og svo þessi flensa
Bara ekki gott.
Þann 17. Mars fórum við Sabine aftur í Hafnarfjörðinn, og tilefnið var auðvitað að taka fleiri myndir af þeim bræðrum.
Nú átti líka að járna þann yngri, Völustein, með botnum sem eigendurnir komu með frá Þýskalandi en þar á bæ var alveg kannast við að hestar væru mjög sárfættir þegar þeir væru með múkk. Svo eins og við öll vitum að þegar hestar eru búnir að vera lengi aumir á vissum stöðum þá veigra þeir sér við að hreyfa þann stað þar sem þeir eiga alltaf von á sársauka. Þannig að við munum hafa þessa botna á fyrst um sinn á meðan Völusteinn er að komast yfir þennan hjalla.
Það skiptist á með rigningu og dimmu yfir þannig að sumar myndirnar eru annað hvort ljósar eða dökkar.

Glófaxi alltaf jafn og góður og svo sáttur við sitt
eru það ekki svona hestar sem maður vill hafa í stóðinu sínu?
Alltaf tilbúnir að leggja sitt fram og hlusta eftir því sem knapinn vill?
Eftir að vera búin að eiga eitt svoleiðis hross, sem kenndi allri fjölskyldunni reiðmennsku þá er ég ekki í nokkrum vafa. Ef þau hafa þann eiginleika að lesa út reiðmanninn hvað biður maður þá um meira?

Jú, auðvitað góðan gang og mýkt á þeim öllum. Þetta held ég að sé í Glófaxa, því ég hef prufað hann sjálf og ræð alveg við hann
svo er annar eiginleiki hjá honum en það er þessi mýkt eins og hjá Lýsu móður hans, og það á öllum gangi.

Kann þetta alveg strákurinn
Væri alveg til í að vera þarna í Hafnafirðinum með mín hross, því reiðleiðir eru svo skemmtilegar. Bæði skógi vaxnar, krókóttar og aflíðandi brekkur og hjallar. Svona skemmtilegt landslag kunna hestarnir okkar líka að meta
Náttúran í öllu sínu.
Jæja, en svo var að taka myndir af litla dýrinu, Völusteini eftir járninguna

Viljinn og eldið í honum var slíkur að ekki var ráðlegt að fara á bak nema með þessi mél, en hann er þó búinn að vera í beislisþjálfun og hreyfingu, en við vildum þó vita hvernig hann tæki þessari nýju járningu. Þetta eru ekki þyngingar en gel sem er sprautað inn í hófinn eftir járningu og þornar síðan og á að gefa dempun þannig það er ekki eins mikið högg þegar hesturinn stígur til jarðar. Þetta ráð var fengið í Þýskalandi og bara hugsað til að draga úr sársauka. Þetta hafði þau áhrif, að ekki blóðgaðist svæðið, þar sem múkkið er og hesturinn ekki að hlífa sér.

Þarna sést líka að hann er búinn að fitna dálítið
en það er bara gott því ef þetta grær alveg hér eftir, mun honum ekki veita af aukaforða

Þessi mynd var tekin rétt áður en komið er í hesthúsahverfið aftur. Árni þurfti aðeins að hafa fyrir því að halda aftur hraðanum en ekki ganginum
16. Mars 2010
Heimsókn í Hafnarfjörð

Þar sem vinkona okkar frá Þýskalandi, Sabine Sebald, kom til Íslands til að taka myndir af hestum og landslagi ákváðum við að nýta okkur tækifærið og fá hana til að taka myndir af þeim bræðrum Glófaxa og Völusteini

Rigning var misjöfn svo að auðvitað er birtan í myndunum misjöfn. Fleiri myndir af Glófaxa eru í albúminu hans og bæti ég þeim síðan við eftir því sem ég kemst í að vinna þær.
Völusteinn er eins og áður búinn að eiga við mikið múkk og hefur þar af leiðandi ekki verið hreyfður mikið en Árni ákvað að teyma hann samt utan á öðrum hesti til þess að hann fái einhverja hreyfingu og við myndir
Tek það nú samt fram að þetta var í fyrsta skiptið fyrir Völustein og var hann ansi ástfangin af hestinum við hliðina og reyndi margoft að fara uppá hann

Alveg ótrúlegt að horfa á þennan fola, því hann hreyfir sig eins og ormur. Allur gangur hjá honum er laus og hefur hann ekkert fyrir því að hreyfa sig.

Þar sem hann er stundum sárfættur ætlum við að járna hann á botna til þess að sjá hvort það hjálpi honum eitthvað.
Við kíkjum svo bara á þá aftur og tökum fleiri myndir af þeim bræðrum
Bæti við einni mynd enn af litla dýrinu þar sem hann var alveg að deyja úr ást

8. Mars 2010
Sund hjá Faxahestum
Í dag fórum við með Völustein í sund hjá þeim Helga Leifi og Örnu hjá Faxa Hestum í Víðdal.
Alveg týpískt að maður gleymdi myndavélinni
en við ætlum nú að koma við aftur í vikunni og taka myndir til að setja inn.
Tekið var á móti Völusteini og honum dembt beint í laugina, en hann hafði sko aðrar skoðanir á því strákurinn og ætlaði ekki ofaní. Eftir smá pústra tekur hann undir sig svaka stökk og stakk sér beint ofan í laugina.................... við sáum ekkert í hann í þessu svaka kafsundi........... Hann hefur greinilega haldið að þetta væri keppni í dýfingum
Svo synti hann 2 hringi með tannkremsbrosið alveg í lagi, við gífulegar undirtektir áhorfenda
Þetta tók sko aldeilis á enda skreið hann á hnjánum uppúr og flatmagaði þarna á maganum alveg steinhissa yfir því hvert hann væri nú kominn!!!
Bara tekin úr gjöf í stíunni sinni og endaði svo ÞARNA
Æji, ef maður hefði haft myndavél til að taka myndir, þó það hefði bara verið af svipnum hans þegar hann kom uppúr
Þegar við fórum var búið að setja hann í þurrkstíuna og reyndi hann mikið að bíta þetta loft sem kom úr þurrkaranum enda flaksaði snoppan í allar áttir
Það síðasta sem við sáum til hans þá var hann að spjalla við þurrkfélaga í stíunni við hliðina og alveg áræðanlega til að fá upplýsingar um þennan skrýtna stað
